Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Ráðherra heimsækir Þórbergssetur

 Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður Þórbergsseturs og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.  - mynd
Þórbergssetur er helgað sögu Suðursveitar og lífi og verkum Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti setrið í dag og kynnti sér fjölbreytta starfsemi þess. Þá undirrituðu ráðherra og Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður Þórbergsseturs samning um áframhaldandi stuðning mennta- og menningarmálaráðuneytis við setrið.

„Það er fróðlegt og skemmtilegt að sækja heim Þórbergssetur, ekki aðeins til þess að kynnast ævi og störfum Þórbergs og fá innsýn í hans magnaða hugarheim heldur má hér einnig fræðast um eldri íbúa svæðisins, papana í Klukkugili, landnámsmanninn Hrollaug og víkingabyggðina í Steinadal. Ég hvet landsmenn og annað ferðafólk eindregið til þess heimsækja fjölbreytt söfn og fræðslusetur vítt og breitt um landið, það er frábær leið til þess að upplifa söguna og kynnast landinu okkar betur,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Þórbergur Þórðarson (1888-1974) ólst upp á bænum Hala sem á þeim tíma var í einni afskekktustu byggð á Íslandi. Hlutverk Þórbergsseturs er að efla rannsóknir og umfjöllun um ævi, störf og ritverk Þórbergs og miðla fræðslu og þekkingu um hann, og sögu og mannlíf í Austur-Skaftafellssýslu, til ferðamanna og almennings. Þá eflir Þórbergssetur önnur fræðastörf sem tengjast söfnun, varðveislu og skráningu menningarminja í Suðursveit og Austur-Skaftafellssýslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum