Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2019

Yfirhjúkrunarfræðingur á sjúkrasviði

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki, Yfirhjúkrunarfræðingur á sjúkrasviði
Staða yfirhjúkrunarfræðings á sjúkrasviði á Sauðárkróki er laus til umsóknar. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2019.

Á sjúkrasviði eru tvær samreknar deildir, sjúkradeild og hjúkrunardeild.

Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á sjúkrasviði. Næsti yfirmaður er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis á Sauðárkróki.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er á sjúkrasviði
- Stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður
- Skipuleggja og stjórna hjúkrunarþjónustu sjúkrasviðs og taka þátt í klínísku starfi
- Tryggja að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
- Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða stjórnunar er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni 
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og einnig er hægt að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi starfsferliskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.07.2019

Nánari upplýsingar veitir
Herdís Klausen - [email protected] - 455 4011 / 891 9171
Guðný Friðriksdóttir - [email protected] - 860 7750

Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sauðárkrókur Sjúkrasvið
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur

Sækja um starf


Starfssvið: Sérfræðingar á heilbrigðissviði

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum