Hoppa yfir valmynd
11. júlí 2019

Sjúkrliði í heimahjúkrun

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða í heimahjúkrun til að sinna þjónustu í Fjarðabyggð. Starfshlutfall er 80% eða skv. samkomulagi. Staða veitist frá 1. ágúst 2019 til 31. ágúst 2020.

Helstu verkefni og ábyrgð
Sinna öldruðum og veikum skjólstæðingum sem búa heima.

Hæfnikröfur
Sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi nauðsynleg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 29.07.2019

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir - [email protected] - 470-1420 & 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - [email protected] - 470-3081 & 865-5737

Heilbrigðisstofnun Austurlands
Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður

Sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum