Hoppa yfir valmynd
11. júlí 2019

Vélamaður

Starf vélamanns hjá þjónustustöðinni í Hafnarfirði er laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða. 

Starfssvið
Eftirlit með snjómokstri verktaka, eftirlit getur átt sér stað á nóttu
Viðhald, þjónusta og nýbyggingar vega á starfssvæði Vegagerðarinnar í Hafnarfirði
Ýmis vinna í starfsstöð 

Menntunar- og hæfniskröfur
Almennt grunnnám.
Almenn ökuréttindi og meirapróf bifreiðastjóra.
Vinnuvélaréttindi.
Reynsla af ámóta störfum æskileg
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
Góðir samstarfshæfileikar.
Gott vald á íslenskri tungu


Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2019. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið [email protected] Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er. 

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar  um starfið veitir Bjarni Stefánsson, deildarstjóri umsjónardeildar í Hafnarfirði [email protected] eða í síma 552 1461 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum