Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2019

Sérfræðingur í upplýsingadeild

Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í upplýsingadeild. Hlutverk upplýsingadeildar er að standa að hlutlausri upplýsingamiðlun og fræðslu til heilbrigðisstétta, lyfjanotenda og annarra hagsmunaaðila. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er reiðubúinn að vinna krefjandi og fjölbreytt starf. Starfshlutfall er 100%. 

Helstu verkefni:
- Uppfærsla á efni á vefjum Lyfjastofnunar, t.d. birting nýskráninga, afskráninga og textabreytinga lyfja á sérlyfjaskrá.is og uppfærsla á listum á vef stofnunarinnar.
- Tölfræðileg úrvinnsla lyfjanotkunar.
- Frétta- og greinaskrif fyrir vef Lyfjastofnunar.
- Aðkoma að ýmsum þverfaglegum verkefnum eftir þörfum, t.d. vinnu við stoðskrá lyfja (FEST).
- Upplýsingagjöf og samskipti við almenning, fagstéttir, fjölmiðla og aðra hagsmunaaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meistara- eða embættispróf í lyfjafræði.
- Þekking á lyfjum og umhverfi lyfjamála á Íslandi.
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
- Góð enskukunnátta og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
- Mjög góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
- Mjög góð samstarfshæfni og færni til að vinna í hóp.
- Frumkvæði og sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
 

Upplýsingar um starfið veitir Jana Rós Reynisdóttir, deildarstjóri upplýsingadeildar, [email protected], eða í síma: 520-2100.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknir um starfið óskast sendar á netfangið [email protected], merkt í efnislínu: „sérfræðingur í upplýsingadeild“. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Sigurlaugar Kristínar Jóhannsdóttur, mannauðsstjóra, Vínlandsleið 14, Reykjavík. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Lyfjastofnun hvetur bæði karla og konur til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2019.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit  með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna 62 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta.

Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum