Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2019 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Íslenska landsliðið í vélmennaforritun á leið til Dubai

Hannes Árni Hannesson, Uggi Gunnar Bjarnason, Selma Árnadóttir ráðgjafi ráðherra, Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Kormákur Atli Unnþórsson þjálfari, Ásþór Björnsson og Eyþór Máni Steinarsson þjálfari liðsins.  - mynd

Félagar í íslenska landsliðinu í vélmennaforritun heimsóttu Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í gær og kynntu undirbúning sinn fyrir ólympíukeppni í vélmennaforritun sem haldin verður í Dubai í október.

Á hverju ári er einu liði frá hverju landi boðið að koma og taka þátt í þessari alþjóðlegu keppni en Ísland mun nú taka þátt í þriðja sinn. Í fyrra náði íslenska liðið öðru sæti af rúmlega 190 liðum sem er sannarlega frábær árangur. Markmiðið með keppninni er að vekja athygli á og kveikja ástríðu ungs fólks fyrir námi, leik og starfi í vísinda- og tæknigreinum.

„Það var frábært að kynnast þessum ungu eldhugum og fá fræðslu um keppnina. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þátttakendur til þess að kynnast og vinna með öðrum framúrskarandi einstaklingum á framhaldsskólaaldri víða að úr heiminum. Og svo er þetta líka mjög spennandi og flottur vettvangur til þess að kynna möguleika verk- og tæknináms. Ég hlakka til að fylgjast með íslenska liðinu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum