Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019

Hjúkrunarfræðingur á geislameðferð krabbameina

Hjúkrunarfræðingur á geislameðferð krabbameina

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á geislameðferð krabbameina 10K við Hringbraut. Starfið er laust frá 1. október 2019 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%, dagvinna. 

Á deildinni starfa um 10 manns í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Í boði er einstaklingshæfð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafi samband við Arnfríði deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Greina hjúkrunarþarfir, veita hjúkrunarmeðferð og bera ábyrgð á meðferð skv. starfslýsingu
» Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur LSH
» Veita markvissa fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
» Einkennameðferð og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
» Þátttaka og innleiðing nýjunga innan hjúkrunar

Hæfnikröfur
» Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
» Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
» Hæfni og geta til að vinna í teymi
» Góð samskiptahæfni
» Íslenskt hjúkrunarleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Arnfríður Magnúsdóttir - [email protected] - 825 3875
Þórdís Ágústa Ingólfsdóttir - [email protected] - 824 5480


Landspítali
Geislameðferð krabbameina
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum