Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019

Sjúkraliði - kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild

Sjúkraliði - Komdu í lið með okkur

ÁHUGAVERT STARF - GÓÐUR STARFSANDI - GOTT SAMSTARFSFÓLK - TÆKIFÆRI TIL AÐ ÞRÓA MEÐ SÉR MIKLA FAGLEGA ÞEKKINGU OG HÆFNI Í SJÁLFSTÆÐUM VINNUBRÖGÐUM - HÖFÐAR ÞETTA TIL ÞÍN? 

Við auglýsum eftir sjúkraliða til starfa á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG. Starfshlutfall er samkomulagsatriði. 
Á deildinni er veitt sérhæfð meðferð fyrir einstaklinga sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og þvagfærum. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu.

Einstaklega góður starfsandi ríkir á deildinni og lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju fólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérhæfð umönnun sjúklinga með sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og þvagfærum
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskukunnátta
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um. 

Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Um er að ræða 3 stöðugildi. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Erla Dögg Ragnarsdóttir - [email protected] - 824 5875


Landspítali
Kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum