Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2019 Matvælaráðuneytið

Ráðherrar kolefnisjöfnuðu ferðalagið

Ráðherrar kolefnisjöfnuðu ferðalagið - myndÁskell Þórisson

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fundaði í gær með Norrænum landbúnaðar,  sjávarútvegs, matvæla og skógræktarráðherrum um loftslagsbreytingar. Fundurinn var á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, en Ísland fer með formennsku í nefndinni í ár.

Á fundinum var rætt um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurlöndin, sér í lagi hvað varðar landbúnað, sjávarútveg og skógrækt. Markmið fundarins var að ræða hvernig Norðurlöndin geti tekist á við loftslagsbreytingar saman, meðal annars með því að  binda koltvísýring í jarðveg. Þá á að nýta samtakamáttinn til að beita sér gegn svokölluðum drauganetum í sjónum, sem eru veiðarfæri sem verða eftir og þarf að fjarlægja. Að fundi loknum gróðursettu ráðherrarnir tré í Gunnarsholti til þess að kolefnisjafna ferðir sínar, fengu þar fræðslu um skógrækt og  heimsóttu einnig Syðri- Gegnishóla og fengu kynningu á verkefninu „Horses of Iceland.“

Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2019. Yfirskrift formennskuársins er „Gagnvegir góðir“, sem vísar til vináttu Norðurlandanna sem birtist í öflugu samstarfi en gagnvegir liggja líka út í heim þar sem Norðurlöndin kynna sig sameiginlega og leggja sitt af mörkum til alþjóðasamstarfs. Áherslumál Íslands á formennskuárinu eru þrjú: Ungt fólk, sjálfbær ferðamennska og málefni hafsins.

  • $alt
  • $alt

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi
Heimsmarkmið Sþ: 14 Líf í vatni
Heimsmarkmið Sþ: 13 Verndun jarðarinnar
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum