Hoppa yfir valmynd
18. september 2019 Innviðaráðuneytið

Hlutdeildarlán auðvelda fyrstu kaup - nýtt úrræði fyrir unga og tekjulága

Ásmundur Einar fundaði með Kevin Stuart, húsnæðismálaráðherra Skotlands, í gær. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, átti í gær fund með Kevin Stuart, húsnæðismálaráðherra Skotlands. Hann sat sömuleiðis vinnufund með skoskum embættismönnum þar sem húsnæðismál voru rædd með sérstakri áherslu á stuðning við ungt fólk og tekjulága við að komast inn á fasteignamarkaðinn. Í för með ráðherra voru fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Íbúðalánasjóði.

Markmið fundanna var að kynnast því með hvaða hætti stjórnvöld í Skotlandi hafa innleitt og unnið með svokölluð hlutdeildarlán sem hafa hjálpað íbúðakaupendum að festa kaup á sinni fyrstu eign. Bæði Englendingar og Skotar hafa valið þann kost að veita hlutdeildarlán (Equity Loans) til þess að styðja við tekjulægri íbúðakaupendur og stuðla að hagkvæmum nýbyggingum þar sem þess er þörf.

Þegar kemur að stöðugleika á húsnæðismarkaði eru þrjár stoðir sem skipta mestu máli; kaupendur, byggingaraðilar og lánveitendur. Hlutverk stjórnvalda  er að tryggja að skipulag og umgjörð húsnæðismarkaðarins sé með þeim hætti að það ríki stöðugleiki, að byggingaraðilar geti tryggt jafnt og viðeigandi framboð, að almenningur hafi aðgang að lánsfé og að viðkvæmustu hópar samfélagsins og dreifðar byggðir njóti sérstaks stuðnings. Hlutdeildarlánin eru eitt púsl í þessa heildarmynd.

Í yfirlýsingu um stuðning stjórnvalda við lífskjarasamninga kemur fram að unnið verði með aðilum vinnumarkaðarins að því að finna skynsamlegar leiðir og útfærslur til að auðvelda ungu fólki fasteignakaup. Sérstaklega var samið um að nýta mætti 3,5% af lífeyrissparnaði til innborgunar við fasteignakaup (svissneska leiðin). Samhliða þessu var lagt til að boðið yrði upp á svokölluð hlutdeildarlán. Slík lán bera lægri vexti og afborganir fyrstu árin og gera þannig tekjulágum kleift að komast yfir útborgunarþröskuldinn. Lánin verða síðan endurgreidd þegar eigandi selur íbúð eða greiðir lánið upp.

„Eitt af meginmarkmiðum mínum í embætti ráðherra er að gera ungu fólki kleift að kaupa sínu fyrstu íbúð. Hlutdeildarlán eru góð og skynsamleg leið til hjálpa íbúðarkaupendum að komast yfir útborgunarþröskuldinn í upphafi. Þessi heimsókn gefur okkur færi á að dýpka skilning okkar á úrræðinu og helstu áhrifum þess. Ég bind miklar vonir við að það muni ryðja sér til rúms á íslenskum húsnæðismarkaði og hjálpa ungu fólki og tekjulágu, sem og fólki sem misst hefur húsnæði, að eignast þak yfir höfuðið,“ segir Ásmundur Einar.


  • Hlutdeildarlán auðvelda fyrstu kaup - nýtt úrræði fyrir unga og tekjulága - mynd úr myndasafni númer 1
  • Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Kevin Stuart, húsnæðismálaráðherra Skotlands, við slípaðan íslenskan stein með áletruninni "með lögum skal land byggja" sem íslensk stjórnvöld færðu þeim skosku að gjöf þegar húsnæði skoska þingsins var vígt í Holyrood í Edinborg árið 2004. - mynd
  • Með Ásmundi Einari Daðasyni félags- og barnamálaráðherra í för eru (frá vinstri) Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Gunnhildur Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála hjá félagsmálaráðuneytinu, Arnar Þór Sævarsson, aðstoðarmaður félags- og barnamálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Rún Knútsdóttir, deildarstjóri á húsnæðissviði Íbúðalánasjóðs. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum