Umsækjendur um embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands
Umsóknarfrestur um embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands rann út þriðjudaginn 18. nóvember sl. Fimm umsóknir bárust, frá einni konu og fjórum körlum.
Umsækjendur eru:
Guðjón Gísli Guðmundsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Erling Ragnar Erlingsson, viðskiptafræðingur
Hans Benjamínsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
Hlynur Ingason, lögfræðingur
Marín Guðrún Hrafnsdóttir, blaðamaður
Ráðgert er að skipað verði í embættið til fimm ára frá 1. janúar 2020.