Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2019

Hjúkrunarfræðingur - barna- og unglingageðdeild

Hjúkrunarfræðingur á barna- og unglingageðdeild

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á legudeild barna- og unglingageðdeildar (BUGL). Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Vaktabyrði er hófleg en einnig er möguleiki á dagvinnu eingöngu. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar.

Deildin er 17 rúma deild þar sem veitt er fjölskyldumiðuð þjónusta sem byggir á hugmyndafræði tengslamiðaðrar nálgunar. Hlutverk deildarinnar er að sinna börnum og fjölskyldum þeirra sem þurfa á tímabundinni innskrift að halda vegna geðræns vanda barns. Á deildinni starfa um 45 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur starfar í þverfaglegu teymi að umönnun og meðferð barna og unglinga með geðrænan vanda. Fjölskylduvinna er einn lykilþátta starfsins. Hjúkrunarfræðingur tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.

Hæfnikröfur
» Framhaldsnám í geðhjúkrun eða annað framhaldsnám sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
» Reynsla af meðferðarstarfi er kostur
» Framúrskarandi samskiptahæfni skilyrði
» Færni til þverfaglegs samstarfs og teymisvinnu 
» Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar, frumkvæði og færni til að vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra meðferðaraðila
» Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar 
» Góð almenn tölvukunnátta og færni í mæltu og rituðu máli
» Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal - [email protected] - 543 4320

Landspítali
Barna- og unglingageðdeild
Dalbraut 12
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum