Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2019

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi - barna- og unglingageðdeild

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á barna- og unglingageðdeild

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi óskast til starfa á legudeild barna- og unglingageðdeildar (BUGL). Deildin er 17 rúma sólarhringsdeild þar sem veitt er fjölskyldumiðuð þjónusta sem byggir á hugmyndafræði tengslamiðaðrar nálgunar. Hlutverk deildarinnar er að sinna börnum og fjölskyldum þeirra sem þurfa á tímabundinni innskrift að halda vegna geðræns vanda barns.

Á deildinni starfa um 45 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi og miklir möguleikar eru til starfsþróunar. Við tökum vel á móti nýju fólki og bjóðum markvissa, einstaklingshæfða starfsaðlögun í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2020 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinnur í þverfaglegu teymi við umönnun og meðferð barna og unglinga með geðrænan vanda og fjölskyldna þeirra
» Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
» Stuðlar að góðum starfsanda

Hæfnikröfur
» Reynsla af meðferðar-, umönnunar- eða uppeldisstörfum er skilyrði
» Framúrskarandi samskiptahæfni
» Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og frumkvæði
» Færni til þverfaglegs samstarfs og teymisvinnu
» Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
» Menntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi æskileg
» Góð almenn tölvukunnátta og færni í íslensku, mæltu og rituðu máli
» Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
» Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal - [email protected] - 543 4320


Landspítali
Barna- og unglingageðdeild
Dalbraut 12
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum