Hoppa yfir valmynd
2. desember 2019

Hjúkrunarfræðingur

Hjúkrunarfræðingur

Laus er til umsóknar 80 % staða hjúkrunarfræðings á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða afleysingastöðu í vaktavinnu. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi og veitist til 1. janúar 2021.
Næsti yfirmaður er Brynja Dröfn Tryggvadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur gjörgæsludeildar.

Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa fullgilt hjúkrunarpróf og gilt starfsleyfi.
Starfsreynsla í gjörgæsluhjúkrun er æskileg.
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. 
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið alþjóðlega vottun á starfsemi sinni.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 23.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Brynja Dröfn Tryggvadóttir - [email protected] - 4630100
Hulda Sigríður Ringsted - [email protected] - 4630100


Sjúkrahúsið á Akureyri
Gjörgæsludeild.
Eyrarlandsvegur
600 Akureyri


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum