Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Embætti ríkissáttasemjara laust til umsóknar

Félagsmálaráðuneytið hefur auglýst embætti ríkissáttasemjara laust til umsóknar. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálráðherra, mun skipa í embættið til fimm ára. Umsóknir verða metnar af sérstakri ráðgefandi hæfnisnefnd sem ráðherra skipar.

Í auglýsingunni segir að ríkissáttasemjari starfi á grundvelli laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, með síðari breytingum. Hann annast sáttastörf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga þeirra hins vegar. Skal þess því gætt að afstaða hans sé slík að telja megi hann óvilhallan í málum launafólks og atvinnurekenda, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Enn fremur er lögð áhersla á forystuhæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum.

Þá segir að umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skuli berast félagsmálaráðuneytinu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða á starfatorg.is  Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019.

Ráðuneytið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um embættið.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum