Hoppa yfir valmynd
18. desember 2019 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Gunnar Jakobsson tilnefndur í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika

Gunnar Jakobsson. - mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tilnefnt Gunnar Jakobsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Forsætisráðherra skipar í embættið.

Forsætisráðherra auglýsti 3. október 2019  eftir varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Fjármála-og efnahagsráðherra skipaði þriggja manna hæfnisnefnd til að fjalla um hæfni umsækjendanna og lauk hún störfum sl. mánudag. Niðurstaða hennar var að meta fimm umsækjendur mjög vel hæfa til að gegna embættinu. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur nú farið yfir gögn málsins, niðurstöður hæfnisnefndarinnar og tekið viðtöl við þá fimm einstaklinga sem nefndin mat mjög vel hæfa. Að loknu heildarmati hefur ráðherra ákveðið að tilnefna Gunnar Jakobsson í embættið.

Í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem taka gildi um áramótin, er forsætisráðherra falið að skipa bæði seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits skulu þó skipaðir að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

Gunnar Jakobsson er lögfræðingur að mennt, með MBA próf frá Yale og hefur undanfarin ár gegnt stjórnunarstöðum hjá Goldman Sachs, fyrst í New York og nú síðast sem framkvæmdastjóri lausafjársviðs og persónuverndar Goldman Sachs International í London.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum