Hoppa yfir valmynd
23. desember 2019 Innviðaráðuneytið

Endanleg framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2019

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlags, útgjaldajöfnunarframlags og framlags vegna sérþarfa nemenda fyrir árið 2019.

Útgjaldajöfnunarframlög 2019

Ráðherra samþykkti tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2019, skv. 14. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Nema framlögin samtals 10.400 m.kr. þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli á árinu samtals að fjárhæð 750,0 m.kr og framlög vegna akstursþjónustu fatlaðra úr dreifbýli að fjárhæð 14 m.kr. Til greiðslu á árinu hafa komið samtals 8.306,3 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 2.093,7 m.kr. koma til greiðslu milli jóla og nýárs. Meðtalin í þeirri greiðslu eru viðbótarframlög vegna skólaaksturs að fjárhæð 175,0 m.kr. og framlög vegna akstursþjónustu fatlaðra úr dreifbýli að fjárhæð 14 m.kr. 

Tekjujöfnunarframlög  2019

Þá var samþykkt tillaga ráðgjafarnefndarinnar um endurskoðaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2019, skv. 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2018.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1.250,0 m.kr. Um ¾ hlutar framlaganna að fjárhæð 937,5 m.kr. komu til greiðslu í október. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 312,5 m.kr. koma til greiðslu milli jóla og nýárs.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 2019

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um endurskoðaða og endanlega áætlun um úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri á árinu 2019, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002.  Framlögin nema samtals 2.602 m.kr. á þessu ári.

Framlögin eru veitt á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda er lögheimili eiga í sveitarfélaginu, óháð því hvar nemendurnir fá kennslu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum