Hoppa yfir valmynd
27. desember 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings við undirritun samkomulags um byggingu hjúkrunarheimilisins fyrr á þessu ári - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti -/ME

Efnt hefur verið til samkeppni um hönnun á nýju 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík sem leysa mun af hólmi dvalar- og hjúkrunarheimilið Hvamm. Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit standa saman að byggingu heimilisins. Með tilkomu þess fjölgar hjúkrunarrýmum á svæðinu um sex.

Framkvæmdasýsla ríkisins stendur fyrir hönnunarsamkeppninni fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélagsins Norðurþings. Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 7. janúar næstkomandi en því síðara 7. febrúar. Skilafrestur tillagna er til 21. febrúar 2020.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum