Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2020

Næringarfræðingur

Næringarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða næringafræðing til starfa ótímabundið í 50-80% starf á stofnunina. Um er að ræða dagvinnu og er starfið laust frá 1. febrúar 2020 eða samkvæmt samkomulagi. 
Hér er um að ræða tækifæri fyrir framsækinn og metnaðarfullan næringarfræðing sem hefur áhuga að vinna að umbótum og framþróun í þverfaglegum teymum til að efla þjónustu við skjólstæðinga. 
Starfsemi heilsugæslunnar í Reykjanesbæ er fjölbreytt, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, mæðravernd, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka. 
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð
Næringarfræðingur hefur umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf til skjólstæðinga stofnunarinnar.
Hann er þátttakandi í þverfaglegri teymisvinnu, meðal annars í sykursýkismóttöku.
Sinnir fræðslu og hefur umsjón með fræðsluefni.

Næringarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og siðareglum og markmiðum stofnunarinnar.

Hæfnikröfur
Löggilding samkvæmt reglugerð sem og gilt starfsleyfi.
Faglegur metnaður.
Góð samskiptahæfni.
Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
Hlýtt og jákvætt viðmót.
Klínísk reynsla æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússsvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Íbúafjöldi upptökusvæðisins, sem er Reykjanesið, er um 28.000 íbúar auk alþjóðaflugvallar. 

Starfshlutfall er 50 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 24.01.2020

Nánari upplýsingar veitir
Andrea Klara Hauksdóttir - [email protected] - 422-0500


Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Hg Keflavík aðrir
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum