Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2020

Sálfræðingur / félagsráðgjafi

 
Sálfræðingur / félagsráðgjafi í stöðu þerapista í MST

MST er meðferð fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda. Meðferðin fer fram á heimili og í nærumhverfi fjölskyldunnar í samstarfi við starfsfólk barnaverndarnefnda, skóla, heilbrigðisstofnana og aðra sérfræðinga. MST miðar að því að draga úr vandanum með því að efla bjargráð foreldra og bæta samheldni og samskipti í fjölskyldu. Aðgengi er að meðferðaraðilum (þerapistum) í síma allan sólarhringinn. Sjá nánar: www.mstservices.com

MST þerapisti sinnir meðferð fjölskyldna og barna í nærumhverfi undir stjórn teymisstjóra í samvinnu við lykilaðila. Þerapisti gerir vikulegar skráningar á meðferðarvinnu og meðferðaráætlun fyrir faghandleiðslu teymis og lokaskýrslu fyrir tilvísunaraðila. Tekur þátt í klínískri starfsþróun með teymisstjóra og erlendum MST sérfræðingi. Þerapisti heldur meðferðarfundi og er aðgengilegur forsjáraðilum barns í síma innan umsamins sveigjanlegs vinnutíma. Er á tilteknum tímum aðgengilegur þeim fjölskyldum sem teymið sinnir í síma allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. Um er að ræða tímabundið starf út október 2021.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Krafa um meistarapróf og löggildingu sem sálfræðingur eða starfsréttindi sem félagsráðgjafi.
Krafa um þekkingu og færni í hugrænni atferlismeðferð, fjölskyldumeðferð, atferlismótun og félagsnámskenningum.
Krafa um þekkingu og áhuga á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur.
Krafa um þekkingu á sviði frávika í hegðun og þroska barna og unglinga, matsaðferðum og greiningarhugtökum.
Sérmenntun í meðferðarvinnu sem nýtist í starfi er æskileg.
Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
Krafa um góða enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli og æskileg kunnátta í einu Norðurlandamáli.

Persónulegir eiginleikar:
Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað.
Lögð er áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum. Einnig er metinn áhugi og forsendur umsækjenda til þess að tileinka sér aðferðir MST.
Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvæðu viðhorfi til skjólstæðinga og samstarfsaðila. 

Annað
Tekur þátt í 5 daga MST grunnþjálfun í byrjun og reglulegri þjálfun eftir það.
Meðferðarvinnan fer fram á heimili fjölskyldunnar og í nærsamfélagi í samstarfi við skóla og aðra lykilaðila. Handleiðarar og þerapistar hafa starfsaðstöðu í sérstöku húsnæði teymisins að Suðurlandsbraut 20, 105 Reykjavík.
Þerapistar þurfa að hafa ökuréttindi og fá til umráða bifreið, farsíma og fartölvu.

Um fullt starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna. 

Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2020. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur, fjármála- og mannauðsstjóra Barnaverndarstofu, í síma 530 2600 eða [email protected]. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu á netfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu.  Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.   

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum