Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2020

Vef- og viðmótshönnuður

Vef- og viðmótshönnuður

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 27. janúar 2020

Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða vef- og viðmótshönnuð.

Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í að leiða áframhaldandi framþróun á vef Hagstofunnar og sá sem því sinnir yrði helsti sérfræðingur Hagstofunnar á sviði vefmiðlunar, með tilliti til hönnunar og framsetningar efnis. Vinnan gengur út á að þróa og innleiða stafrænar lausnir með notendamiðaðri hönnun. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forritara á upplýsingatæknideild og sérfræðinga á fagsviðum Hagstofunnar. 

Hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur, til dæmis á sviði vef- og viðmótshönnunar, margmiðlunar eða viðeigandi listnáms 
Starfsreynsla af vef- og viðmótshönnun er nauðsynleg
Starfsreynsla af hönnun og myndvinnslu (grafísk hönnun og myndræn gagnaframsetning)
Þekking og/eða starfsreynsla á framendaforritun (HTML og CSS)
Þekking á almennt viðurkenndum venjum í hugbúnaðarþróun
Reynsla af því að hafa starfað í teymum og stjórnað verkefnum
Þekking á Javascript er kostur
Þekking á hagnýtingu samfélagsmiðla er kostur
Góð samskipta- og samstarfsfærni
Frumkvæði og drifkraftur

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.01.2020

Nánari upplýsingar veitir
Helga Hauksdóttir - [email protected] - 5281000


Hagstofa Íslands
Samskipti og miðlun
Borgartún 21A
150 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum