Forstöðuhjúkrunarfræðingur - lyflækningadeild
Forstöðuhjúkrunarfræðingur - lyflækningadeild
Laus er til umsóknar staða forstöðuhjúkrunarfræðings á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri.
Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu.
Staðan er laus frá 15. febrúar n.k. eða eftir samkomulagi.
Næsti yfirmaður er Alice Harpa Björgvinsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Forstöðuhjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á hjúkrun innan deildarinnar, stjórnar faglegri þróun, rekstri og starfsmannahaldi deildarinnar.
Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi og að lágmarki fimm ára starfsreynsla í hjúkrun.
Nám í stjórnun og rekstri og/eða stjórnunarreynsla skilyrði.
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins, www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af stjórnunarstörfum ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa eftir því sem við á.
Viðtöl verða höfð við valda umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á þeim ásamt innsendum gögnum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins.
Sjúkrahúsið á Akureyri er reyklaus vinnustaður.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.01.2020
Nánari upplýsingar veitir
Alice Harpa Björgvinsdóttir - [email protected] - 4630100
Hulda Sigríður Ringsted - [email protected] - 4630100
Sjúkrahúsið á Akureyri
Lyflækningadeild
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri
Smelltu hér til að sækja um starfið