Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2020

Þjónustufulltrúi

 

Þjónustufulltrúi

Laust er til umsóknar fullt starf þjónustufulltrúa við Háskólann á Hólum. Við háskólann starfa um 50 einstaklingar og eru starfsstöðvar hans tvær, að Hólum í Hjaltadal og í Verinu Vísindagörðum á Sauðárkróki. Hólar í Hjaltadal eru fjölskylduvænn staður, þar er leik- og grunnskóli og stutt í aðra þjónustu.

Starfssvið
Upplýsingagjöf og þjónusta við nemendur og starfsmenn
Umsjón með upplýsingamiðlum, vefsíðu, samfélagsmiðlum og kynningarmálum
Umsýsla Knapamerkja í samstarfi við verkefnisstjóra
Ritari fastanefnda og háskólaráðs, ritun fréttatilkynninga

Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Grunnþekking í vefumsjón
Rík þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Um er að ræða 100% stöðu. Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Umsóknarfrestur um stöðuna er til 31. janúar 2020 og er æskilegt að viðkomandi geti hafði störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Björn Eyþórsson, fjármála- og skrifstofustjóri, [email protected].

Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected] merkt þjónustufulltrúi. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, afrit af prófskírteinum og upplýsingar um tvo meðmælendur. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.  
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum