Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samkomulag um þverfaglega þjónustu við einstæða foreldra

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, handsala samkomulagið. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, handsöluðu á dögunum samkomulag um áframhaldandi samstarf um svokallað TINNU-verkefni sem felst í því að veita einstæðum foreldrum margvíslega og þverfaglega þjónustu.  

TINNA í öll hverfi og fræðsla til sveitarfélaga

Þegar TINNU-verkefnið hófst fyrir fjórum árum var það sniðið að þörfum einstæðra foreldra á fjárhagsaðstoð í Breiðholti. Á þessu ári verður verkefnið fært út til allra hverfa í borginni og jafnframt mun það ná til foreldra sem fá örorkulífeyri til framfærslu. Þá er gert ráð fyrir að öðrum sveitarfélögum, sem hafa áhuga á að innleiða verkefnið, verði boðin fræðsla um það. 

„TINNA hefur þegar skilað framúrskarandi árangri í þágu barna og barnafjölskyldna í Breiðholti. Það er því afar ánægjulegt að fá ekki bara að styðja áfram við þessa metnaðarfullu vegferð hjá borginni heldur taka þátt í því að útvíkka verkefnið frekar,“ sagði Ásmundur Einar. 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ánægður með áframhaldandi samstarf við félagsmálaráðuneytið. „Ég er mjög stoltur af TINNU-verkefninu sem hefur skilað góðum  árangri á undanförnum árum. Það snýst um að fá fólk til að taka þátt í því sem samfélagið hefur upp á að bjóða og byggja það upp. Það hefur reynst fólki í viðkvæmri stöðu afar mikilvægt og þess vegna erum við að fara með í öll hverfi. “ sagði Dagur. 

Betri lífsgæði 

TINNU-verkefnið er hluti af Fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi, sem heyrir undir þjónustumiðstöð Breiðholts. Meginmarkmiðið er að bjóða þátttakendum heildstæða þjónustu sem stuðlar að bættum lífsgæðum fjölskyldna, virkri þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði, eftir því sem við á. TINNA er klæðskerasniðin aðstoð og eru námskeið og fræðsla sniðin að þörfum og óskum hvers og eins. Börn þátttakenda í TINNU fá m.a. stuðning og hvatningu til aukinnar þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og aðra þjónustu eftir þörfum.

Fyrirmyndamódel í vinnu með einstæða foreldra og börn þeirra

Alls hafa 63 þátttakendur og 102 börn verið með í TINNU og af þeim hefur 21 þátttakandi útskrifast og farið út á vinnumarkað, í nám eða fengið örorkumat. Samkvæmt óháðri úttekt sem gerð var á verkefninu sumarið 2018 kom í ljós að tækifæri og þátttaka barna í skipulögðum tómstundum jókst til mikilla muna. Verkefnið hefur því þróast í fyrirmyndamódel sem mikilvægt er að styrkja og þróa áfram. Nú eru þátttakendur í TINNU-verkefninu 41 fullorðinn og 72 börn. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum