Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Jón Atli Benediktsson áfram rektor HÍ

Jón Atli Benediksson rektor HÍ og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. - mynd

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og núverandi rektor Háskóla Íslands mun gegna embættinu áfram til næstu fimm ára. Að fenginni tillögu háskólaráðs skólans afhenti Lilja Alfreðsdóttir honum skipunarbréf þessa efnis á dögunum. Embættið var auglýst laust til umsóknar í desember og umsóknarfrestur rann út 3. janúar síðastliðinn.

Jón Atli var kjörinn rektor Háskóla Íslands vorið 2015 og tók formlega við embætti þann 1. júlí það ár. Hann er 29. rektorinn sem gegnir embættinu frá því að Háskóli Íslands tók til starfa árið 1911. Jón Atli lauk prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands 1984, M.S.E.E. prófi frá Purdueháskóla  í Bandaríkjunum 1987 og doktorsprófi í rafmagnsverkfræði 1990.

Samkvæmt lögum um opinbera háskóla er rektor formaður háskólaráðs, yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og utan. Hann hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki heildarstefnu í málefnum háskólans. Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi skólans og á milli funda háskólaráðs fer hann með ákvörðunarvald í öllum málum háskólans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum