Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Þróun umfangs aðgerða í þágu loftslagsmarkmiða stjórnvalda

Síðastliðin ár hefur ríkissjóður gefið eftir hluta af virðisaukaskatti vegna kaupa á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðum til þess að hvetja til kaupa á umræddum bifreiðum. - myndGolli

Á árunum 2015-2019 nam innheimta kolefnisgjalds 21,5 ma.kr. m.v. verðlag hvers árs. Á sama tímabili námu skattastyrkir 9,1 ma.kr. og fjárveitingar til málefna sem er m.a. ætlað að draga úr losun koltvísýrings 16 ma.kr. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar alþingismanns. Ríkisstjórnin hefur lagt aukna áherslu á loftslagsmál, m.a. með aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem kynnt var haustið 2018.

Árlegar tekjur ríkissjóðs af kolefnisgjaldi á verðlagi hvers árs má sjá í töflunni hér fyrir neðan. Þróun kolefnisgjalds fylgdi verðlagi árin 2015-2017 en var hækkað til viðbótar um 2,5% umfram verðbólgu árið 2017 líkt og önnur krónutölugjöld. Árið 2018 var gjaldið hækkað um 50% og árið 2019 var gjaldið hækkað um 10%.

Tekjur ríkissjóðs í m.kr.

2015

2016

2017

2018

2019*

Kolefnisgjald

3.274

3.464

3.806

5.317

5.680

*Áætlun. Heimild: Ríkisreikningur, fjárlög, fjáraukalög.

Síðastliðin ár hefur ríkissjóður gefið eftir hluta af virðisaukaskatti vegna kaupa á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðum til þess að hvetja til kaupa á umræddum bifreiðum. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá hversu mikill skattastyrkurinn hefur verið á verðlagi hvers árs síðustu fimm árin.

Skattastyrkir ríkissjóðs í m.kr.

2015

2016

2017

2018

2019*

Lækkun á VSK fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðar

468

916

2.295

3.035

2.401

*Fjárhæðin er fyrir tímabilið janúar-nóvember 2019. Heimild: Tollstjóri.

Útgjöld ríkissjóðs í formi fjárveitinga sem stuðla að minni losun kolefnis eru ólík og á ábyrgð nokkurra ráðuneyta og stofnana. Í töflunni hér að neðan má sjá hversu mikil útgjöldin hafa verið á verðlagi hvers árs. Vert er að benda á að sum útgjöldin, sér í lagi þau sem tengjast almennissamgöngum, þjóna fleiri markmiðum en eingöngu því að minnka losun kolefnis.

Ríkisstjórnin kynnti fjármagnaða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum þann 10. september 2018. Þess sjást merki strax í fjárlögum ársins 2019 eins og fram kemur í töflunni.

Fjárveitingar í m.kr.

2015

2016

2017

2018

2019

Orkuskipti í samgöngum (vegasamgöngum og öðru)

-

67

67

67

257

Margvíslegar aðrar loftslagsaðgerðir

-

24

24

74

108

Kolefnisbinding

-

65

65

65

185

Átak í endurheimt votlendis

-

20

20

20

48

Loftslagssjóður

-

-

-

-

64

Rannsóknir og vöktun vegna loftslagsbreytinga

-

74

51

51

58

Styrkir til almenningssamgangna

896

988

2.926

3.264

3.407

Rafgeymar og landtengibúnaður fyrir Herjólf

-

-

-

-

830

Styrkir til göngu- og hjólastíga*

400

400

200

200

1.000

Samtals

1.296

1.638

3.353

3.741

5.957

*Þar af er 750 m.kr. vegna samkomulags um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Heimild: Ríkisreikningur, fjárlög og ráðuneyti.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum