Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2020

Hagfræðingur

Starf hagfræðings hjá Samkeppniseftirlitinu

Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir öflugum hagfræðingi sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum. Viðkomandi mun í störfum sínum vinna náið með aðalhagfræðingi og sérfræðingum stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum
- Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla
- Miðlun hagfræðilegrar þekkingar við rannsókn mála
- Samskipti við hagsmunaaðila
- Þátttaka í öðru þróttmiklu starfi Samkeppniseftirlitsins á sviði hagfræði
- Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi

Hæfnikröfur
- Háskólapróf í hagfræði
- Gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar við tölfræðigreiningar og úrvinnslu gagna
- Þekking á atvinnuvega- eða vinnumarkaðshagfræði er kostur
- Reynsla af samkeppnismálum er kostur
- Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
- Hæfni í samskiptum og geta til að vinna undir álagi
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er rafrænt um starfið á www.starfatorg.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.

Samkeppniseftirlitið áskilur sér rétt til þess að ráða á grundvelli auglýsingarinnar næstu sex mánuði eftir birtingu hennar, sbr. reglur um auglýsingar á lausum störfum, nr. 1000/2019. Við ráðningar hjá Samkeppniseftirlitinu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar. 

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Samkeppniseftirlitið fylgist með samkeppni fyrirtækja í síbreytilegu atvinnulífi landsins.
Eftirlitið spornar við óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinnur gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðveldar aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.

Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum og nær árangri í starfi. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Samkeppniseftirlitið fékk viðurkenningu sem ein af fimm fyrirmyndarstofnunum í sínum stærðarflokki á árinu 2019.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Valur Þráinsson - [email protected] - 585-0700
Karítas Margrét Jónsdóttir - [email protected] - 585-0700


Samkeppniseftirlitið
skrifstofur
Borgartún 26
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum