Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2020

Sálfræðingar í geðteymi

Sálfræðingar í geðteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 9. mars nk.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða 2 sálfræðinga í geðteymi fyrir fullorðna. Um er að ræða 80 til 100% framtíðarstarf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Á HSS er öflug sálfræðiþjónusta, sem býður upp á göngudeildarþjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Áhersla er lögð á að þróa sálfræðiþjónustuna í samræmi við geðheilbrigðisáætlun og við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum sálfræðingi, sem hefur áhuga á að taka þátt í þeirri þróun með okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðiþjónusta fyrir 18 ára og eldri
- Greining og mat á geðrænum vanda
- Gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
- Eftirfylgd einstaklinga með alvarlegar geðraskanir
- Námskeiðahald
- Teymisvinna
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir og félagsþjónustu
- Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu HSS 

Hæfnikröfur
- Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
- Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum
- Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningatækja 
- Það er lögð áhersla á sjálfstæði og frumkvæði í starfi, auk sveigjanleika í samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Finnsdóttir - [email protected] - 422 0500 / 862-5386


Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Sálfélagsleg þjónusta aðrir
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum