Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2020

Sérnámslæknar í heimilislækningum

Sérnámslæknar í heimilislækningum Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Lausar er til umsóknar 5 sérnámsstöður í heimilislækningum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sérnámsstöðurnar veitast frá 15.8. 2020 eða eftir nánara samkomulagi og með fyrirvara um samþykki inntöku og framgangsnefndar (samkvæmt viðmiðunarreglum/marklýsingu). 

Sérnámið:
Sérnám í heimilislækningum hefur verið starfrækt í fjölda ára á Íslandi og hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins verið leiðandi í sérfræðináminu.

Sérnámið byggir á marklýsingu Félags íslenskra heimilislækna https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item33037/vidurkenning-a-marklysingu-fyrir-sernam-i-heimilislaekningum-a-islandi-
 
Sérnámið fer fram undir virkri handleiðslu handleiðara sem er sérfræðingur í heimilislækningum og fylgir sérnámslækni eftir allan námstímann.
Sérnámslæknir skipuleggur nám sitt í samráði við handleiðara og kennslustjóra sérnáms.

Námið fer fram á heilsugæslustöð í 3 ár og á sjúkrahúsi í 2 ár. Starfshlutfall er 100%

Kostir sérnáms:
- Einstaklingsmiðuð námsáætlun
- Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sérfræðinga
- Blokkasamningur við Landspítala varðandi spítalahluta sérnámsins
- Hópkennsla hálfan dag í viku
- Þátttaka í rannsóknar- eða gæðastarfi
- Sameiginlegar námsferðir innanlands sem utan
- Rafræn sérnámsmappa sem heldur utan um framgang í námi

Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar og heilsuvernd
- Vaktþjónusta
- Nám samhliða starfi 
- Rannsóknar og gæðastarf

Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi 
- Að hafa lokið kandidatsári eða sambærilegu námi
- Mjög góðir samskiptahæfileikar, fagmennska og jákvæðni
- Hæfni og vilji til að vinna náið með skjólstæðingum og samstarfsfólki
- Frumkvæði, faglegur metnaður og geta til að starfa sjálfstætt
- Áreiðanleiki, samviskusemi og vandvirkni
- Lausnamiðuð hugsun og vinnubrögð
- Vilji til þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskukunnátta nauðsynleg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands. 

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, umsögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Elínborg Bárðardóttir - [email protected] - 513-5000


Námsstöður lækna
Álfabakki 16
109 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum