Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2020 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra undirritar þjónustusamning við Samtökin '78

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna '78, undirrita samstarfssamning - mynd

Forsætisráðuneytið og Samtökin '78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa ákveðið að endurnýja samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna '78, undirrituðu samstarfssamning í Stjórnarráðinu í dag.

Samningnum er ætlað að efla þjónustu við hinsegin einstaklinga og aðstandendur þeirra og tryggja fagfólki í opinberri stjórnsýslu, skólum og annarri almannaþjónustu fræðslu um málefni hinsegin fólks.

Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á jafnréttismál og í stefnuyfirlýsingu hennar kemur fram það markmið að Ísland verði í fremstu röð hvað varðar málefni hinsegin fólks. Í samstarfi við Samtökin '78 og með framfylgd laga um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru árið 2019 er vonast til að Ísland nái því markmiði.

Samningurinn er til eins árs og gildir frá 18. febrúar 2020 til 18. febrúar 2021. Auk þeirra 15 milljóna sem forsætisráðuneytið greiðir samtökunum til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til samþykkti Alþingi í fyrra 20 milljóna króna fjárveitingu til Samtakanna '78. Þannig hafa fjárframlög ríkisins til samtakanna margfaldast á síðustu árum, en árið 2017 voru þau sex milljónir króna.

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
10. Aukinn jöfnuður
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum