Hoppa yfir valmynd
2. mars 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Allir reikningar ríkisstofnana sendir rafrænt frá 1. maí

Allir reikningar frá ríkissjóði og ríkisstofnunum verða frá og með 1. maí næstkomandi sendir rafrænt til viðskiptavina. Markmiðið er að lækka viðskiptakostnað allra aðila, nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins með auknu framboði stafrænnar þjónustu og framfylgja umhverfissjónarmiðum.

Fjársýslan og ríkisstofnanir sjá um að senda reikningana út til viðskiptavina. Þeir verða frá og með 1. maí gerðir aðgengilegir í gegnum pósthólfið á Island.is. Jafnframt verður í boði að fá reikninga senda rafrænt í gegnum skeytaþjónustu.  Reikningar eða greiðsluseðla sem verða rafrænir varða t.d. þing- og sveitarsjóðsgjöld, bifreiðagjöld, þungaskatt, sektir, komugjöld og fleira.

Um 200 milljónir sparast árlega

Áætlað er að um 200 m.kr. sparist á ári með því að nýta rafræna reikninga, m.a. með lækkun prentkostnaðar og póstburðargjalda.

Unnið hefur verið að því að gera viðskiptaumhverfi ríkisins rafrænt í samræmi við stefnu þar um. 1. janúar 2020 tók gildi ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu skyldu gefnir út með rafrænum hætti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum