Hoppa yfir valmynd
25. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd um hæfni dómara skilar umsögn

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur um skipun í embætti dómara við Landsrétt sem auglýst var laust til umsóknar 3. janúar 2020. Umsóknarfrestur var til 20. janúar 2020. Alls bárust fjórar umsóknir um embættið.

Niðurstaða dómnefndar er að Ásmundur Helgason sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti dómara við Landsrétt.

Dómnefndina skipuðu: Ingimundur Einarsson, formaður, Eyvindur G. Gunnarsson, Kristín Benediktsdóttir, Óskar Sigurðsson og Sigríður Þorgeirsdóttir.

Hér er að finna umsögn dómnefndar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum