Hoppa yfir valmynd
25. mars 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tryggja nægjanlegt framboð af hlífðarfatnaði fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra mælir á morgun fyrir frumvarpi um undanþágu frá CE- merkingu á hlífðarfatnaði heilbrigðisstarfsfólks. Markmið frumvarpsins, sem unnið var í samstarfið við heilbrigðisráðuneytið, er að tryggja nægjanlegt framboð af hlíðarfatnaði fyrir heilbrigðisstarfsfólk þrátt fyrir hugsanlegan skort á slíkum búnaði í Evrópu vegna COVID-19 faraldursins.

Hratt gengur á birgðir af hlífðarfatnaði í landinu og óvissa um hvor framleiðendur CE-merkts hlífðarfatnaðar geti annað eftirspurn á Evrópska efnahagssvæðinu. Samkvæmt frumvarpinu getur Vinnueftirlit ríkisins heimilað, að fenginni rökstuddri beiðni, innflutning á hlífðarfatnaði sem ekki er CE-merktur til nota hér á landi vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Innflytjendur verða þó að tryggja að hlífðarfatnaðurinn uppfylli viðurkenndar öryggis- og heilbrigðiskröfur. Ákvæðið tekur gildi um leið og það verður samþykkt og gildir til 1. janúar 2021. Frumvarpið var unnið í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið, utanríkisráðuneytið og Vinnueftirlit ríkisins.

Frumvarpið, sem dreift var á Alþingi í dag, má finna hérna.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Það  er mjög mikilvægt að við tryggjum nægjanlegt framboð af þeim búnaði sem heilbrigðisstarfsfólk notast við í baráttunni við COVID-19 faraldurinn. Við vitum að þetta er tímabundið ástand og við ætlum að tryggja áframhaldandi gott aðgengi að nauðsynlegum búnaði á meðan við förum í gegnum skaflinn.”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum