Blóðbankinn auglýsir eftir öflugum liðsauka
Blóðbankinn auglýsir eftir öflugum liðsauka
Blóðbankinn óskar eftir öflugum liðsauka til starfa við framleiðslu og þjónustudeild Blóðbankans. Um er að ræða dagvinnustarf á meðan á þjálfun stendur en vaktavinnu eftir að þjálfun lýkur. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf hið fyrsta.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, veiruskimun og afgreiðslu blóðhluta. Í Blóðbanka starfa um 55 manns, líffræðingar, lífeindafræðingar, hjúkrunarfræðingar, læknar og skrifstofumenn og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Framleiðsla blóðhluta
» Rannsóknir á blóði sjúklinga og blóðgjafa
» Afgreiðsla blóðhluta til sjúkrastofnana
» Virk þátttaka í áframhaldandi þróun gæðakerfis Blóðbankans
Hæfnikröfur
» Menntun sem uppfyllir kröfur til þess að öðlast starfsleyfi sem náttúrufræðingur í heilbrigðisþjónustu eða lífeindafræðingur
» Reynsla innan blóðbanka æskileg
» Sjálfstæði í vinnubrögð um og skipulagshæfni
» Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
» Sterkur vilji til að standa sig í skemmtilegu og krefjandi starfi
» Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2020
Nánari upplýsingar veitir
Sveinn Guðmundsson - [email protected] - 824 5465
Ína Björg Hjálmarsdóttir - [email protected] - 824 5287
Landspítali
Blóðbankinn, framleiðsla og þjónusta
Snorrabraut 60
105 Reykjavík
Smellið hér til að sækja um starf