Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Forsendur fyrir atvinnustarfsemi innan Vatnajökulsþjóðgarðs bættar

Úr Morsárdal í Skaftafelli - myndLjósmynd: Vatnajökulsþjóðgarður

Reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð hefur verið endurútgefin með viðbót sem fjallar um atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum. Tilgangurinn er að móta samræmdar reglur fyrir atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins á grunni atvinnustefnu hans.

Haustið 2016 tóku gildi breytingar á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð með ákvæðum um að setja nánari reglur um atvinnutengda starfsemi og leyfisveitingar. Samkvæmt lagabreytingunum varð óheimilt að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án sérstakra samninga þar um og setja skyldi skilyrði fyrir starfseminni sem yrðu nánar útfærð í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð. Það hefur nú verið gert, með endurútgáfu reglugerðarinnar.

Þar er að finna skilgreiningar á atvinnutengdri starfsemi, fjallað er um málsmeðferð, samningagerð og gerður greinarmunar á þeirri starfsemi sem nauðsynlegt er að takmarka að umfangi og annarri starfsemi. Kaflinn um atvinnutengda starfsemi var unninn í samráði við stjórn þjóðgarðsins og voru drög að þeim kafla kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.

Stjórn þjóðgarðsins samþykkti í júní 2019 atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs sem var unnin með víðtæku samráði við hagsmunaaðila. Meðal yfirlýstra markmiða sem fram koma í atvinnustefnunni er að öll ákvarðanataka skuli vera gegnsæ, skilvirk og málefnaleg og að sanngjarn fyrirvari skuli hafður á öllum ákvörðunum sem líklegar eru til að snerta atvinnutengda hagsmuni.

Með þessum breytingum á reglugerðinni eru því skapaðar forsendur fyrir innleiðingu atvinnustefnunnar. Einnig skapast betri forsendur fyrir atvinnustarfsemi í þjóðgarðinum og grundvöllur styrkist fyrir stjórnsýslu Vatnajökulsþjóðgarðs um atvinnutengda starfsemi. Þjóðgarðurinn hefur samtímis unnið að gerð verkferla við gerð samninga og útgáfu þeirra leyfa sem kveðið er á um í reglugerðinni. Með þessum umbótum á regluverki þjóðgarðsins er því verið að skapa forsendur fyrir fjölbreytta og öfluga atvinnutengda starfsemi í tengslum við hann með vernd náttúru og sjálfbærni að leiðarljósi.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum