Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2020

Lektor í byggingarverkfræði

Lektor í byggingarverkfræði


Laust er til umsóknar fullt starf lektors í byggingarverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Markmið deildarinnar er að styrkja nám og rannsóknir í verkfræðilegum aðferðum sem stuðla að sjálfbæru þjóðfélagi. 

Leitað er þekkingar á einum eða fleiri af eftirtöldum fagsviðum (í röð eftir mikilvægi):
>>Húsbyggingartækni, eðlisfræði bygginga, varma- og rakaflutningur í byggingareiningum, efnisfræði 
>>Áhrif bygginga á heilsu, umhverfi og samfélag, sjálfbærni í mannvirkjagerð
>>Verkfræðileg burðarþolshönnun fyrir örugga og sjálfbæra innviði og byggt umhverfi, sem tekur tillit til áhrifa loftslagsbreytinga, óblíðra náttúruafla og náttúruhamfara


Helstu verkefni og ábyrgð
>>Að byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir, birta ritrýndar vísindagreinar, afla utanaðkomandi rannsóknarstyrkja og eiga virka þátttöku í alþjóðlegum verkefnum og samstarfi 
>>Að byggja upp meistara- og doktorsnám á fagsviðinu og leiðbeina nemendum í framhaldsnámi 
>>Þróa, kenna og hafa umsjón með grunn- og framhaldsnámskeiðum á fagsviðunum 
>>Vinna akademísk þjónustu- og stjórnunarstörf


Hæfnikröfur
>>Doktorspróf í byggingarverkfræði
>>Reynsla í rannsóknum á sérsviðum sem falla undir fagsvið auglýsingarinnar
>>Hafa birt ritrýndar vísindagreinar og ráðstefnugreinar í faginu
>>Uppfylla skilyrði iðnaðarráðuneytisins fyrir löggildingu starfsheitisins verkfræðingur og hljóta leyfisbréf fyrir starfsheitinu innan árs frá upphafi starfsins
>>Reynsla af viðeigandi háskólakennslu er nauðsynleg
>>Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
>>Framúrskarandi samskiptahæfni í skrifuðu og töluðu máli er nauðsynleg

Deildin leggur áherslu á að kennsla skyldunámskeiða í grunnnámi fari fram á íslensku. Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildarinnar.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. ágúst 2020 eða síðar eftir samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla. 

Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Samkvæmt 38. gr. reglnanna er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni 1) vottorð um námsferil sinn og störf, 2) akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae), 3) ritaskrá, 4) skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, 5) greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur og 6) upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á. 
Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er ein sex deilda Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Við deildina stunda um 160 stúdentar nám, þar af um 60 framhaldsnemar, bæði meistara- og doktorsnemar. Við deildina starfa um 15 akademískir starfsmenn. Deildin hefur sterk alþjóðleg tengsl og mörg rannsóknaverkefni eru unnin í samstarfi hérlendis og erlendis. Kennsla í grunnnámi við Háskóla Íslands fer að jafnaði fram á íslensku en kennsla í framhaldsnámi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er alþjóðleg og fer að jafnaði fram á ensku. Erlendum starfsmönnum er boðið að sækja námskeið í íslensku.

Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi. 


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2020


Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Freyr Úlfarsson - [email protected] - 525 4000



Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, kennsla
Hjarðarhaga 2-6
101 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum