Sjúkraflutningamaður í Grindavík - HSS
Sjúkraflutningamaður í Grindavík - HSS
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann til að starfa í aukastarfi á sjúkrabifreið í Grindavík. Um er að ræða bakvaktir. Starfið er tímabundið og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraflutningamenn í Grindavík vinna í aukastarfi á bakvöktum við sjúkraflutninga, þeir sinna útköllum á sjúkrabíl, umönnun og flutningi sjúkra og slasaðra.
Um er að ræða sjúkraflutninga í Grindavík og nágrenni, viðkomandi þarf að vera búsettur í Grindavík vegna eðli starfsins.
Hæfnikröfur
Vera 18 ára á því ári sem nám er hafið.
Hafa lokið amk. 60 einingum (100 F-einingum) úr viðurkenndum framhaldsskóla.
Hafa innan við tveggja ára gamalt skirteini í skyndihjálp.
Umsækjendur með réttindi til sjúkraflutninga ganga fyrir
Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- & sjúkraflutningamanna hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af ökuskírteini og öðrum prófskírteinum sem eiga við ásamt starfsleyfi ef það á við. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.
Starfshlutfall er 10 - 30%
Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2020
Nánari upplýsingar veitir
Snorri Björnsson - [email protected] - 422-0500/860-0180
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Sjúkrabílar
Skólavegur 6-8
230 Reykjanesbær
Smellið hér til að sækja um starf