Hoppa yfir valmynd
20. maí 2020

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Fjörður

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Fjörður


Heilsugæslan Fjörður auglýsir eftir 2 hjúkrunarfræðingum til starfa ótímabundið í 80-100% störf við heilsugæsluhjúkrun og skólahjúkrun. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið er skólaheilsugæsla og almenn móttaka á heilsugæslustöð.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. Einnig er boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf.


Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
- Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
- Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
- Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Færni í fyrirlestrahaldi
- Þekking á réttindum barna
- Sjálfstæði í starfi, skiplagningarhæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. 

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2020


Nánari upplýsingar veitir
Thelma Björk Árnadóttir - [email protected] - 513-5400
Guðrún Gunnarsdóttir - [email protected] - 513-5400


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Firði hjúkrun
Fjarðargötu 13 - 15
220 Hafnarfjörður


Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum