Hoppa yfir valmynd
22. maí 2020

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Siglufirði, hjúkrunarfræðingar sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Siglufirði, hjúkrunarfræðingar sumarafleysing


Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði (HSN) óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar á hjúkrunar- og sjúkradeild.
Ráðningartími er frá 15. júní til 25. ágúst 2020 eða samkvæmt samkomulagi.
Við erum einnig opin fyrir því að ráða inn til skemmri tíma, í lotur eða helgar.
Möguleiki á aðstoð við útvegun húsnæðis.


Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.


Hæfnikröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
- Starfsreynsla í hjúkrun æskileg


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskirteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.


Starfshlutfall er 40 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.06.2020


Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigurbjörg Gilsdóttir - [email protected] - 460 2172
Sigurður Jóhannesson - [email protected] - 460 2174



Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Fjallabyggð Hjúkrunarsvið
Hvanneyrarbraut 37
580 Siglufjörður


Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum