Hoppa yfir valmynd
22. maí 2020

Lögreglumaður - Húsavík

Lögreglumaður - Húsavík


Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögreglumanns með starfsstöð á Húsavík. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri skipi í stöðuna, til fimm ára, frá og með 1. júlí 2020.


Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigum við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu. 


Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Þó er heimilt að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) æskileg sem og önnur almenn tölvukunnátta, einnig er tungumálakunnátta kostur. Nauðsynlegt er að viðkomandi búi yfir skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum, sýni frumkvæði og sjálfstæði í starfi og hafi yfir að búa færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp. 

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. 

Sækja skal um stöðurnar rafrænt á starfatorg.is

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2020


Nánari upplýsingar veitir
Kristján Kristjánsson - [email protected] - 444-2800
Jóhannes Sigfússon - [email protected] - 444-2800



Lögreglustjórinn á Norðurl eystra (06316)
Þórunnarstræti 138
600 Akureyri



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta