Hoppa yfir valmynd
29. maí 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

2,5 milljónir í verðlaun í stærsta hakkaþoni sem haldið hefur verið á Íslandi

Nýsköpunarkeppninni Hack the Crisis Iceland lýkur á hádegi í dag. Þetta er stærsta stafræna hakkaþon sem haldið hefur verið hér á landi með nærri tvöhundruð þátttakendum víða að úr heiminum.

Hakkaþonið (lausnarmótið) hófst 22. maí og stóð yfir alla helgina í formi beinna vefútsendinga og fjarfunda. Alls bárust yfir 64 lausnir, sem gera samtals 128 lausnir,  því teymin máttu skila lausninni í tvo flokka. Það var framar björtustu vonum og þurftu skipuleggjendur að framlengja dómarastörf um einn dag til að velja tólf bestu verkefnin til kynningar í fimm flokkum.

  • Nýskapandi lausnir í heilbrigðisþjónustu
  • Nýskapandi lausnir í félags- og velferðarmálum
  • Nýskapandi lausnir í menntamálum
  • Nýskapandi lausnir í atvinnumálum
  • Opinn flokkur

Yfir fimmtíu mentorar úr viðskiptalífinu gáfu vinnu sína til að leiðbeina teymum. Á annan tug dómara í öllum flokkum hlustuðu svo á kynningar síðustu daga. Fulltrúar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Íslands voru í dómnefnd við mat á bestu lausnum í félags- og velferðarmálum. Félagsmálaráðuneytið lagði til verlaunafé í þeim flokki.

Keppendur voru hvaðanæva að úr heiminum og voru sum keppnisteymanna samsett af fólki í mismunandi heimsálfum. Þátttakendur utan Íslands voru m.a. frá Englandi, Bandaríkjunum, Kína, Brasilíu, Danmörku, Egyptalandi, Mexíkó og Kólumbíu.

Skipuleggjendur voru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Reboothack og Fjármálaráðuneytið. Þeir vilja þakka hinum fjölmörgu þátttakendum fyrir frábærar lausnir. Einnig er þeim sem fluttu fyrirlestra á meðan keppninni stóð, mentorum og dómurum þakkað fyrir sitt framlag.

Verðlaunin í Hack the Crisis Iceland eru gefin af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Heilbrigðisráðuneyti, Fjármálaráðuneyti, Reykjavíkurborg,  Félagsmálaráðuneyti, Menntamálaráðuneyti, Island.is, CCP, Samabandi Íslenskra sveitafélaga, Viðskiptaráði Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Úrslit verða tilkynnt í dag í beinu streymi frá Stúdíó Sýrlandi og hefst verðlaunaafhendingin klukkan 12.00. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun vera með opnunarræðu og afhenda verðlaun. Streymt verður beint frá Facebook síðu viðburðarins.

Þau teymi sem sigra í hverjum flokki fá 500.000 kr. í verðlaunafé, Design thinking hraðal og aðstöðu á frumkvöðlasetri þar sem sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Reykjavíkurborgar annast fræðslu, stuðning og eftirfylgni.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum