Hoppa yfir valmynd
8. júní 2020 Dómsmálaráðuneytið

Fjórtán sóttu um embætti héraðsdómara

Þann 24. apríl sl. auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara sem mun hafa fasta starfsstöð við Héraðsdóm Reykjaness og rann umsóknarfrestur út þann 11. maí 2020. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 31. ágúst 2020.

Umsækjendur um embættið eru: 

  1. Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður
  2. Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
  3. Guðmundína Ragnarsdóttir, lögmaður
  4. Halldóra Þorsteinsdóttir, lektor
  5. Herdís Hallmarsdóttir, lögmaður
  6. Höskuldur Þórhallsson, lögmaður
  7. Ingi Tryggvason, lögmaður
  8. Ingólfur Vignir Guðmundsson, lögmaður
  9. Ólafur Egill Jónsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
  10. Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lektor
  11. Sigurður Jónsson, lögmaður
  12. Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
  13. Súsanna Björg Fróðadóttir, aðstoðarsaksóknari
  14. Þórhallur Haukur Þorvaldsson, lögmaður
Umsóknirnar eru nú til meðferðar hjá dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um embætti dómara.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum