Hoppa yfir valmynd
18. júní 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Staða náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum

Út er komin skýrsla um stöðu náms- og starfsráðsgjafar í grunnskólum hér á landi sem byggir á niðurstöðum rannsóknar sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri gerði fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Þar voru m.a. skoðuð atriði eins og fjöldi náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum, fjöldi stöðugilda, menntun þeirra sem starfa við náms- og starfsráðgjöf, hlutfall nemenda sem njóta ráðgjafar, hvers konar þjónusta er veitt og hvaða aldurshópum og þjónusta við nemendur af erlendum uppruna. Markmið verkefnisins var að gera úttekt á fyrirkomulagi og gæðum náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum með spurningakönnun og vettvangsheimsóknum og koma með tillögur til úrbóta.

„Í skýrslunni koma fram mjög gagnlegar upplýsingar og tillögur um úrbætur sem við nýtum meðal annars í aðgerðaáætlun nýrrar menntastefnu. Náms- og starfsráðgjafar gegna mikilvægu hlutverki í íslenskum grunnskólum, einkum þegar kemur að árangri, vellíðan og markmiðasetningu nemenda – sem og við að veita þeim leiðsögn um námsleiðir. Okkur er í mun að kraftar þeirra nýtist sem best, og því er þessi skýrsla kærkomið innlegg,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Skýrsla: Staða náms og starfsráðgjafar í grunnskólum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum