Hoppa yfir valmynd
25. júní 2020 Utanríkisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nýtt samkomulag við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna

Helstu áherslur samkomulagsins eru áframhaldandi samvinna og samhæfing á sviði jarðhitaverkefna í austurhluta Afríku. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur gert nýtt samkomulag við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) sem unnið hefur verið að í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Helstu áherslur samkomulagsins eru áframhaldandi samvinna og samhæfing á sviði jarðhitaverkefna í austurhluta Afríku auk nýrra samstarfsverkefna á sviði landgræðslu, sjálfbærrar landnýtingar og jafnréttismála í Afríku.

Samkomulagið byggir á öðru meginmarkmiða þróunarsamvinnustefnu Íslands um verndun jarðarinnar og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og er í beinu framhaldi af samstarfi utanríkisráðuneytisins og UNEP á sviði jarðhita síðan 2012 og undirritun viljayfirlýsingar UNEP og umhverfis- og auðlindaráðherra í september 2019.  

Í nýja samkomulaginu verður lögð áhersla á að nýta íslenska sérþekkingu í þróunarsamvinnu og sérfræðinga á áherslusviðum samkomulagsins, m.a. með samstarfi við Jafnréttisskóla, Jarðhitaskóla og Landgræðsluskóla GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu.

Umhverfismál og sjálfbærni eru leiðarljós í allri okkar þróunarsamvinnu. Við höfum um árabil miðlað af íslenskri sérþekkingu í þágu sjálfbærrar uppbyggingar í þróunarríkjunum og samningurinn við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna, er liður í því að efla það samstarf enn frekar," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Að sögn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, er ánægjulegt að sjá að landgræðsla komi nú inn í samkomulag stjórnvalda við UNEP.

„Eyðing skóga og búsvæða í Afríku ógnar vistkerfum og loftslagi og þess vegna eru náttúrulegar lausnir sem felast í endurheimt tapaðra landgæða og sjálfbærri landnýtingu mikilvægur þáttur í að bæta lífsafkomu fólks og draga úr hnattrænum umhverfisbreytingum.“

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum