Hoppa yfir valmynd
26. júní 2020

Lausar stöður framhaldsskólakennara

Lausar stöður framhaldsskólakennara - Fjölbrautaskóli Suðurlands


Fjölbrautaskóli Suðurlands auglýsir eftir framhaldsskólakennurum.
Um er að ræða:
Kennslu 2ja áfanga fóðrunar- og heilsu á hestabraut fyrir skólaárið ´20-´21
Kennslu 3ja áfanga í ensku á haustönn ´20


Umsóknarfrestur er til  og með 10. júlí 2020. Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 2020. 


Nemendur koma að mestu af upptökusvæði skólans sem er allt Suðurland. Áætlaður nemendafjöldi í skólanum eru um 860 nemendur.


Umsækjendur þurfa að hafa fagmenntun- og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.


Leitað er eftir skipulögðum einstaklingum með brennandi áhuga á skólastarfi og löngun til að  vinna með ungu fólki. Umsækjandi þarf að hafa frumkvæði í starfi, vera skipulagður, vera fær í samskiptum og samvinnu og hafa góða fagþekkingu. Þekking á ólíkum kennsluaðferðum er mikilvæg í ljósi fjölbreytts nemendahóps. Kennslureynsla er æskileg. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi störf. Góð tölvukunnátta er mikilvæg.


Umsóknir ásamt greinargerð um menntun og fyrri störf berist á tölvupóstfangið [email protected] . Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur í umsókninni. Umsækjendur þurfa að senda inn sakavottorð. 


Laun kennara eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.


Nánari upplýsingar um störfin veitir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari, [email protected].  


Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.fsu.is



Skólameistari 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum