Hoppa yfir valmynd
26. júní 2020

Sérkennsluráðgjafi

jónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda sjónskerta - mynd


Laust er til umsóknar 100% starf sérkennsluráðgjafa hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu (ÞÞM) . 

Helstu verkefni Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu,  til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku. 

Meðal helstu verkefna kennsluráðgjafa eru: 
Mat og ráðgjöf á nýtingu sjónar í samstarfi við aðra fagaðila. 
Mat og ráðgjöf um aðlögun námsefnis og kennsluaðstæðna. 
Mat og ráðgjöf í félagsfærni, samskiptum, tilfinningafærni og námstækni.
Mat og kennsla á hjálpartæki.
Ráðgjöf, fræðsla, kynningar og upplýsingamiðlun fyrir kennara, starfsfólk, nemendur skóla, aðstandendur, þjónustuaðila og samfélag. 
Þátttaka í rannsóknarvinnu og þróun nýjunga og umbótaverkefnum.

Hæfniskröfur: 
Háskólamenntun á sviði uppeldis og kennslufræða. 
Kennsluréttindi á grunn- eða framhaldsskólastigi er æskileg.
Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða eða margbreytilegra kennsluhátta  æskileg.
Þekking og/eða reynsla á málefnum blindra og sjónskerta er æskileg.
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi.
Mjög góð íslensku kunnátta, bæði í ræðu og riti, góð ensku kunnátta og kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg. 
Æskilegt er að hafa haldgóða þekkingu í tölvum.

Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.

Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2020.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið m[email protected].


Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðstöfun starfsins liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Melissa Auðardóttir í síma 545 5800. 

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum