Hoppa yfir valmynd
29. júní 2020

Hjúkrunarfræðingur á Patreksfirði

Hjúkrunarfræðingur á Patreksfirði


Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum, sem meðal annars sást í að stofnunin var hástökkvari stórra stofnana í könnun um stofnun ársins árið 2019.


Helstu verkefni og ábyrgð
Við óskum eftir að ráða sjálfstæðan hjúkrunarfræðing í 70 til 100% starf á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Störf hjúkrunarfræðinga á Patreksfirði eru fjölbreytt og vinna þeir með breiðum skjólstæðingahópi. Hjúkrunarfræðingar vinna saman í öflugu teymi og sinna m.a. heilsugæslu, ungbarnavernd, skólahjúkrun, heimahjúkrun og legudeild. 


Sérstaklega er óskað eftir hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að taka að sér heilsuvernd skólabarna sem er skemmtilegt og uppbyggilegt starf í þremur skólum; á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. Helstu viðfangsefni skólahjúkrunar eru m.a. fræðsla, ráðgjöf, bólusetningar og heilbrigðismat. Skólahjúkrunin er um 30–40% starf, og er vinnuvikan að öðru leyti falin í störfum á legudeild og heilsugæslu.


Unnið er á dagvöktum. Þess fyrir utan skipta hjúkrunarfræðingar með sér bakvöktum eftir samkomulagi.


Þetta er kjörið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja starfa við og öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs. Aðstoð verður veitt við öflun húsnæðis.

 

Hæfnikröfur
> Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
> Góð hæfni í mannlegum samskiptum
> Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
> Faglegur metnaður
> Ökuréttindi eru nauðsynleg


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulag.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.


Starfshlutfall er 70 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2020


Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Magnea Matthíasdóttir hjúkrunarstjóri á Patreksfirði í síma 450 2000 og á netfanginu [email protected].



Patreksfjörður
Stekkum 1
450 Patreksfjörður


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum