Hoppa yfir valmynd
29. júní 2020

Kennari í sálfræði


Kennari í sálfræði Fjölbrautaskóli Suðurnesja


Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er laus hálf staða kennara í sálfræði á haustönn 2020. Ráðningartími er frá 1. ágúst. 

Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn með upplýsingum um menntun (ljósrit af prófskírteini fylgi) og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið [email protected] eigi síðar en 8. júlí 2020. Leitað er að framhaldsskólakennara með BA- eða MA próf í sálfræði. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkissjóðs og KÍ skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans. 


Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Sakavottorð fylgi umsókn.


Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum með því að senda tölvupóst á Kristján Ásmundsson skólameistara, [email protected] eða Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.                                                                  


Skólameistari

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum