Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2020 Innviðaráðuneytið

Yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur birt uppfært yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga, skv. 1. mgr. 7. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Yfirlitinu er ætlað til leiðbeiningar fyrir sveitarfélög við stefnumótun og áætlanagerð ásamt því að auðvelda umræðu og yfirsýn yfir skyldur og  hlutverk sveitarfélaga.

Lögmælt verkefni sveitarfélaga eru í yfirlitinu flokkuð eftir málaflokkum og hvort um lögskyld eða lögheimil verkefni er að ræða. Verkefni eru lögskyld ef sveitarfélögum er skylt að rækja þau. Í lögheimilum verkefnum felst að sveitarfélag hefur svigrúm til þess að ákveða hvort verkefninu er sinnt. Ef sú ákvörðun er tekin gildir um verkefnið tiltekinn lagarammi.

Yfirlitið hefur ekki gildi sem sjálfstæð réttarheimild og ráðast skyldur sveitarfélaga ekki af því heldur af viðkomandi lögum. Yfirlitið getur tekið breytingum eftir því sem við á og er öllum frjálst að koma ábendingum á framfæri. Ráðuneytið tekur við ábendingum um efni og form yfirlitsins í netfangið [email protected].

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum