Hoppa yfir valmynd
28. júlí 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Endurskipað í embætti forstjóra Menntamálastofnunar

Arnór Guðmundsson - mynd
Arnór Guðmundsson hefur verið endurskipaður í embætti forstjóra Menntamálastofnunar til næstu fimm ára. Embættið var auglýst laust til umsóknar og sóttu þrír einstaklingar um.

Menntamálastofnun er stjórnsýslustofnun á sviði menntamála sem stuðla skal að auknum gæðum skólastarfs og framförum í þágu menntunar í samræmi við lög og stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið. Stofnunin skal m.a. sjá öllum grunnskólabörnum fyrir fjölbreyttum og vönduðum námsgögnum í samræmi við aðalnámskrá, hafa eftirlit og meta með mælingum árangur af skólastarfi og annast söfnun og greiningu upplýsinga um menntamál.

Arnór Guðmundsson er með doktorsgráðu í félagsfræði frá University of Minnesota og BA gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands. Þá lauk Arnór diplómaprófi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Arnór hefur umfangsmikla stjórnunarreynslu en hann hefur starfað undanfarin fimm ár sem forstjóri Menntamálastofnunar. Áður starfaði hann hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti sem skrifstofustjóri, þróunarstjóri og deildarstjóri.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum